Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 554/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 554/2021

Fimmtudaginn 17. mars 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 25. október 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. október 2021, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. október 2021, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 25. október 2021. Með bréfi, dags. 28. október 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 14. desember 2021 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 15. desember 2021. Athugasemdir bárust ekki. Þann 26. janúar 2022 barst úrskurðarnefndinni afrit af bréfi Vinnumálastofnunar til kæranda frá 16. desember 2021 þar sem fram kemur að ákvörðun um niðurfellingu bótaréttar hefði verið afturkölluð. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 28. janúar 2022, var óskað eftir afstöðu kæranda til þeirra upplýsinga. Sú beiðni var ítrekuð með erindi úrskurðarnefndar 2. mars 2022. Svar barst ekki. 

II.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. október 2021, um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 16. desember 2021, var sú ákvörðun afturkölluð. Úrskurðarnefndin óskaði eftir afstöðu kæranda til þeirra upplýsinga en svar barst ekki.

Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sbr. 11. gr. laganna. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Vinnumálastofnunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum